1. |
Fossgata 5
03:20
|
|||
Fossgata 5.
Rís ég úr rekkju
vakinn upp við fuglasöng.
Fossinn þinn niðar,
býður mér góðan dag.
Stírur í augunum,
göngum við niður stigann.
Brakið er kunnuglegt
fjörðurinn blasir við.
Hún er risin á ný,
Hún er risin að nýju.
|
||||
2. |
Andvarpa
04:10
|
|||
Andvarpa
Finn hve vindurinn hreinsar huga minn
og hugurinn andar hljóðlega inn.
Andvarinn vekur von mína - finn
þar hægist hjartslátturinn.
Flæðir að og fjarar út. Við öndum
hljóðlega út.
Finn hve fjarlægðin við gærdaginn
færir mér draumaheiminn - og
hafsins andardrátturinn
dregur andann hljóðlega inn.
Flæðir að og fjarar út. - Við öndum
hljóðlega út.
Flæðir að og fjarar út. - Ég anda,
anda út.
Finndu það.
Finndu að það flæðir að.
Ég varpa andanum.
|
||||
3. |
Svefnvana
03:07
|
|||
Svefnvana
Svefnleysi aftrar þeirri þrá að flýja veruleikann.
Bitur martröð hversdagsleikans
byrgir því nú sýn, lífslöngunin dvín.
Aðgerðarleysi illsku ver,
í skugganum hún hírist.
Myrkrið elur dýrið,
sem gleypir að lokum- það
góða er í brjósti bar.
Svefnvana veröldin hún spyr
hvort hún megi sofa
undir berum himni og vakna bara á morgun.
Þegar allt er liðið hjá,
stjörnur hylja vá.
Horfum ekki á heiminn líða hjá
án þess að anda inn hans angan.
Fegurðin hún fangar.
Þegar hugur staldrar við -
Bíddu! Snúðu við…
Horfum ekki á heiminn líða hjá
og skeytum engu um hann.
Morgundagurinn er þinn og minn
ef við varðveitum hann.
|
||||
4. |
Heima(h)ljóð
04:54
|
|||
Heima(h)ljóð
Þeir sem heyra meira af því sem áður var
svartnættið sefar en svæfir samt þó ei,
eilíft suðið sækir að þeim.
Þeir sem heyra meira af því sem áður var
hljóðir sitja og hlusta á söngfugla
syngja inn nóttina.
Svartnættið sefar en svæfir samt þó ei
eilíft suðið sækir að þeim sem
svartnættið sefar en svæfir samt þó ei
eilíft suðið sækir að þeim…
|
||||
5. |
Ljósavatn
03:34
|
|||
(Instrumental)
|
||||
6. |
(auð)lind
04:01
|
|||
(Auð)lind
Auðmjúk lífsins lindin sefur ó svo vært og þó þar næstum alveg uppurinn.
Framtíðarsýn, i þokunni býr en örskots leiftursýn veitir mér þó von.
|
||||
7. |
How did this happen
04:23
|
|||
How Did This Happen
Ekki loka augunum, gleyma þér.
Stöldrum við í hugsunum
um heiminn sem börn við blæddum í.
Ana af stað í óvissu,
arka yfir fjöllinn, mosinn rifinn,
sviðin jörð.
Skýin færast nær
og andardráttur þyngist.
Opnum augun virkjum hug-
myndir, sáum sárið í,
ráð að rekja fótsporin
finnum stíginn
villumst ekki á ný.
Fegurðin hún blasir við þér.
bara ef þú sæir það.
barátta sem ber þig að lokum heim.
|
||||
8. |
Heimsendi
04:04
|
|||
Heimsendi
Fegurðin
hún blasir við
en augun þokukennd sjá ei
er skýjahulan sveipar huga.
Hugfanginn
með höfuð hulið
grafið er í sand
glymur í bergsins tungu
skekur sjó og land.
Snarkar í eldinum
við blásum lífi í heimsendi
yljum okkur og byrjum upp á nýtt.
Hindurvitnin herja á hugarró
örlög sín geymir sá er býr yfir sálarró,
lægir hugurinn og hjartans óróinn kveður þig
|
||||
9. |
Seyðisfjörður
05:09
|
|||
Seyðisfjörður
Fyrir þig sem ert mér allt, fjarlægðin geymir drauma, á bakvið fjallgarðinn þeir dvelja, við sjávarsíðuna þeir sofa og brimið ber okkur heim.
Mig og þig sem að ert mér allt.
|
||||
10. |
Syrgjandi
04:54
|
|||
Syrgjandi
Þar sem höfuð þitt rís á yfirborðið,
sólargeislinn skríður hægt yfir og þú dregur andann á ný.
Syrgðu því ei það sem sökk því þú ert risin á ný.
Þar sem höfuð þitt rís á yfirborðið eftir áralangan svefn
vaknar þú líkt og við endurfæðingu.
Árvökul augun skynja ólgu hjarta þíns sem upprisu.
Syrgðu ekki það sem sökk með því núna,
þú ert risin enn á ný.
Syrgðu ekki það sem sökkti því,
Þú ert risin en á ný.
|
||||
11. |
Er þú grætur
04:08
|
|||
Er þú grætur
Er þú grætur,
ég þig róa.
Og þú sefur svo vært hér hjá mér,
því læt ég rödd mína óma.
Því ég veit að
ég verð ekki hér alltaf.
Því bið ég þig muna
þá rödd er áður,
þú svafst þá svo vært af...
Er þú sefur,
yfir þér vaka
allir þeir englar er áður ég bað
þín og ávallt gæta.
Því ég veit að
ég verð ekki hér alltaf.
Því bið ég þig muna
þá rödd er áður,
þú svafst þá svo vært af...
|
Hringfari Iceland
Hringfari is the creative collaboration of Teitur Björgvinsson (IS) and James Bunton (CA). A sonic journey through friendship and wayfinding. Like a compass, Hringfari, draws lines across distances, travels the circle, and creates and collects shared stories and memories. ... more
Streaming and Download help
If you like Hringfari, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp